Home Private Tours About Us FAQ Contact Us
Túrkmenistan
Túrkmenistan
Súrrealískasta land heims með Sveppa — Darwaza eldgígurinn, Yangikala gljúfrin, Karakum eyðimörkin og hvíta marmaraborgin Ashgabat. Allt á íslensku.
4.–10. september 2026 7 dagar Ashgabat Með Sveppa Allt á íslensku
Uppselt
$2,390≈ 298.000 kr
+$300 aukagjald fyrir eins manns herbergi
Brottför
Ashgabat
Lok ferðar
Ashgabat
Lengd
7 dagar
Dagsetning
4.–10. sep 2026
Uppselt
$2,390≈ 298.000 kr
+$300 aukagjald fyrir eins manns herbergi
Brottför
Ashgabat
Lok ferðar
Ashgabat
Lengd
7 dagar
Dagsetning
4.–10. sep 2026
Hverjir leiða ferðina
Fararstjórar
Björn Pálsson
Björn Pálsson
@bjorn_palsson
Sveppi Krull
Sveppi Krull
@sverrirsverriss

Um ferðina
Yfirlit
Túrkmenistan ferðaleið
Súrrealískasta land heims — Darwaza, gljúfur og eyðimörk.
Darwaza eldgígurinn — "Hlið helvítis", brennandi gígur í eyðimörkinni.
Yangikala gljúfrin — hvít, bleik og appelsínugul kalksteinsmyndun.
Karakum eyðimörkin — gisting í jurt-tjöldum undir stjörnum.
Ashgabat — hvíta marmaraborgin, met í Heimsmetabók Guinness.
4x4 off-road akstur og VIP næturlest til Turkmenbashi.
Túrkmenistan
Túrkmenistan
Túrkmenistan
Túrkmenistan

Go Crazy, Go Private
Veldu þína
eigin daga.
Þitt eigið ævintýri.

Kemst ekki á þessum dögum? Við skipuleggjum ferð alveg í kringum þig — þína daga, þinn hóp, þinn hraða.

Þínir dagar Sóló eða hópur Sérsniðin ferð

Það sem þú upplifir
Hápunktar
01
Ashgabat
Ashgabat
Hvíta marmaraborgin — 543 marmarabyggingar og met í Heimsmetabók Guinness.
02
Darwaza
Derwaza gasgígurinn
"Hlið helvítis" — brennandi gígur sem hefur logað í áratugi, magnaður á kvöldin.
03
Yangikala
Yangikala Canyon
Stórbrotin hvít, bleik og appelsínugul kalksteinsgljúfur — fornar skeljar í jörðu.
04
Karakum
Karakum eyðimörkin
Endalausar sandöldur — akstur, útilega og kyrrð langt frá öllu.
05
Yurt
Yurt útilega
Gisting í hefðbundnum jurt-tjöldum við Darwaza gíginn — ógleymanleg nótt.
06
Off-road
4x4 off-road akstur
Jeppaakstur yfir sandöldur og gljúfur — alvöru eyðimerkurævintýri.

Dagur frá degi
Dagskrá
D1
Ashgabat
Nótt: VIP næturlest

Komið snemma morguns til Ashgabat, hvíld á 4★ hóteli og morgunverður. Borgarskoðun: City Center, Independence Monument, Neutrality Arch, Alem Ferris Wheel, Earthquake Monument, Mosque-Mausoleum, Nissa (UNESCO) og Russian Bazaar. Um kvöldið förum við á lestarstöðina og tökum 19:00 næturlestina til Turkmenbashi — gisting í VIP næturlest.

D2
Yangisuw Canyon
Nótt: Tjaldað í gljúfrunum

Komið til Turkmenbashi kl. 09:00, morgunverður og akstur (~2 klst) gegnum Balkan-fjöllin. Dýralíf: úlfaldar, kindur og skjaldbökur á vorin. Stórkostleg hvít, bleik og appelsínugul kalksteinsmyndun, og fornar skeljar í jörðu. Pikknik-hádegisverður, könnun á gljúfrum með jeppa og gangandi. Á heiðskírum dögum sést Garabogaz-flóinn og Kaspíahafið. Tjöldum á fallegum stað, kvöldverður á tjaldsvæðinu.

D3
Eyðimörk og útilega
Nótt: Koymat

Keyrt yfir eyðimörkina að Kemal Ata (pílagrímastaður og grafhýsi við lind með sjaldgæfum klettamyndunum). Dýpra inn á svæðið að Yangikala útsýnispallinum — stórbrotið og litríkt klettalandslag með tækifæri til gönguferða. Eftir hádegi keyrt til Koymat, kristalhvítar klettamyndanir. Gisting í Koymat, hálfnomadískum bæ: úlfaldar, jurt-hús og kynni af lífsstíl heimamanna.

D4
Ygdykala virki
Nótt: Tjaldað í sandöldunum

Eftir morgunverð ekið í austurátt að Melegoch þorpi eftir þurrum árfarvegi Uzboy. Hádegisstopp þar sem við lærum um fálkahefðir eyðimerkur-Túrkmena. Áfram að fornu Ygdykala virki sem stendur á háum kletti — skoðum rústirnar. Ekið yfir mjúkar sandöldur, tjöldum nálægt virkinu, kvöldverður á tjaldsvæðinu.

D5
Darwaza — "Door to Hell"
Nótt: Jurt-tjöld við gíginn

Lagt af stað yfir brattar sandbrekkur, ekið ~70 km til Balishem þorps þar sem við stoppum í hádegismat. Áfram yfir sandöldur að malbikuðum vegi. Hápunktur ferðarinnar: heimsókn að hinum goðsagnakennda Darwaza gasgíg — upplifum brennandi gíginn í allri sinni dýrð. Kvöldverður og kaldir drykkir við eldinn. Ógleymanleg gisting í hefðbundnum jurtum nálægt gígnum.

D6
Ashgabat
Nótt: 4★ hótel í Ashgabat

Eftir morgunverð lagt af stað til Ashgabat. Á leiðinni stoppum við við tvo aðra gíga — leirgíg og vatnsgíg. Innskráning á 4★ hótel og stutt hvíld. Síðdegis borgartúr: Akhal-Teke hestar og markaðir fyrir minjagripi. Um kvöldið næturskoðunarferð, þ.á.m. útsýni frá Wedding Palace.

D7
Heimferð
Lok ferðar

Akstur á alþjóðaflugvöllinn í Ashgabat fyrir heimflug. Lok ógleymanlegrar ferðar um Túrkmenistan.


?
Vissir þú?
"
Árið 2013 komst Ashgabat í Heimsmetabók Guinness fyrir flestar byggingar úr hvítum marmara — 543 byggingar sem ná yfir 4,5 milljónir fermetra. Og það býr nánast enginn í þeim.
Ashgabat, Túrkmenistan

Verð og smáatriði
Hvað er innifalið
Innifalið
Flugrúta til og frá flugvelli
Allar máltíðir á ferðalaginu
Allur akstur
Gisting á 4★ hótelum
Svefnbekkur í lest til Turkmenbashi
Öll aðgangsgjöld
Enskumælandi leiðsögumaður
Vatn á flösku
Aðstoð við vegabréfsáritun
Allur tjaldútbúnaður
Íslenskumælandi leiðsögumaður
Ekki innifalið
Flug til og frá Ashgabat
Persónuleg eyðsla
Þjórfé til lókal leiðsögumanna
Ferðatryggingar
Gjald fyrir vegabréfsáritun ($89 + $14 við komu)

Spurningar?
Algengar spurningar
Er öruggt að ferðast til Túrkmenistan?
Já, það er öruggt að ferðast til Túrkmenistan. Þú verður með hópnum okkar allan tímann og við erum með reynslumikið heimafólk sem sér um okkur og leiðbeinir um landið.
Hvernig fæ ég vegabréfsáritun?
Við útvegum þér boðsbréf (Letter of Invitation) og með því færðu vegabréfsáritun við komu á flugvöllinn í Ashgabat. Þú fyllir út umsóknareyðublað sem við sendum þér og sendir okkur afrit af vegabréfinu. Vegabréfsáritunin kostar 89 USD og innflytjendagjald (migration tax) er 14 USD, greitt við komu.
Hvernig flýg ég til Ashgabat?
Það eru ekki margar flugleiðir, en þú getur flogið í gegnum Tyrkland með Turkish Airlines eða í gegnum Dubai með Emirates eða Fly Dubai. Bæði flugin lenda mjög snemma morguns, annað kl. 02:45 og hitt kl. 03:25.

Frá ferðinni
Myndasafn
Túrkmenistan
Túrkmenistan
Túrkmenistan
Túrkmenistan
Túrkmenistan
Túrkmenistan
Túrkmenistan
Túrkmenistan

Hafa samband
Við svörum
innan 24 tíma.

Ertu með spurningu? Ekki viss hvaða ferð hentar þér? Sendu okkur línu og við svörum innan sólarhrings.

Ókeypis 15 mín spjall