



eigin daga.
Þitt eigið ævintýri.
Kemst ekki á þessum dögum? Við skipuleggjum ferð alveg í kringum þig — þína daga, þinn hóp, þinn hraða.
Heimsóknir: Kermel Market, Dakar Cathedral, Museum of Black Civilizations og African Renaissance Monument. Ferja yfir til Gorée-eyju þar sem við skoðum Slaves House og Door of No Return. Hádegisverður með sjávarútsýni. Kvöldverður og gisting á Chez Salim Hotel.
4x4 jeppasafarí: nashyrningar, gíraffar, sebrahestar, antilópur og alls kyns dýr. Hádegisverður á Bandia Reserve. Markaðsferð í Kaolack — alvöru afrískur markaður og bullandi stemming. Kvöldverður og gisting á Relais Kaolack Hotel.
Ferðumst yfir landamærin til Banjul, höfuðborgar Gambíu. Skoðum 'July 22nd Arch' og Albert Market þar sem hægt er að versla allt frá textíl til ferskra krydda. Heimsókn í Kachikally 'Sacred Crocodile Pool & Museum' þar sem heilagir krókódílar lifa í sátt við mannfólk. Kvöldverður og gisting á Lemon Creek Hotel, rétt við ströndina.
Bátasigling í Makasutu-skógi, fugla- og náttúruskoðun og gönguferð um skóginn. Heimsækjum víngerð þar sem vín er gert úr pálmatrjám, og sjáum villta bavíana í sínu náttúrulega umhverfi. Síðdegisferð til Tanji — stærstu og líflegustu fiskihöfn Gambíu. Kvöldverður og gisting á Lemon Creek Hotel.
Förum yfir landamærin frá Gambíu aftur til Senegal. Akstur í gegnum Foundiougne með víðáttumiklu útsýni yfir Saloum Delta. Heimsókn í Serer-þorp til að kynnast menningu og daglegu lífi heimamanna — tökum þátt í hefðbundnum verkum eins og að mala korn. Dans og skemmtiatriði frá heimamönnum. Kvöldverður og gisting á Ecolodge De Palmarin.
Bátasigling um Saloum Delta, einnig kallað "Amazonía Senegal". Upplifum mangróaskóginn sem er fullur af fuglalífi og ostrum. Hádegisverður á Fisherman's Tavern. Göngum yfir trébrú til Shell Island, heimsækjum kaþólsku kirkjuna og heilaga baobab-tréð, og skoðum einstakan kirkjugarð úr skeljum þar sem múslimar og kristnir eru grafnir hlið við hlið. Kvöldverður og gisting á Royam Hotel.
Akstur á flugvöll í samræmi við flugtíma. Lok ógleymanlegrar ferðar um Senegal og Gambíu.












































